

Jæja.. Nú er ég ekki búin að fara út í
heila viku! Ég heiti sjálfri mér því að verða aldrei aftur veik...
Takk fyrir..
Þessi vika mín hefur nú ekki verið uppá marga, því eins og kom fram
hér á undan, er ég búin að vera föst inn í húsinu mínu í viku, og
lokuð frá umheiminum.
Ég fékk tvö atvinnutilboð samt.. Eitt var ánægjulegt en hitt ekki,
því þessi fyrr um nefnda fór bara að rífast við mig um það að
ég væri veik.. En hin var góð. =) Hlakka líka til að geta
kannski farið að vinna á þeim stað.
Það sem er að hrella mig núna er endajaxl á stærð við
fótboltaleikvang, sem er að brjótast út um tannholdið á mér og vera
mér það til miklum ama að ég hvorki sef né borða. Ég slefa bara og
slefa.

Ingjaldur hefur víst nóg á sinni könnu, en ætlar að reyna að koma
mér að í dag.
Ég held að þessi helgi verði nú bara í rólegri kantinum, eins og
þær eru farnar að vera mjög gjarnan hjá mér núna... Ætla að reyna
við þessa RENT mynd þarna með Unni.
Fæ samt alveg velgju þegar ég heyri þarna lagið sem allir eru með á
heilanum núna (five hundred, tventyfive blabla. six hundered
minutes!.)
Jæja... þá er það heimspeki verkefni eina ferðina en.
Sé að það eru ekkert sérstaklega miklir hugsuðir sem heimsækja
þessa síðu
neihh segji svona...